Það að mála hefur ætíð verið áhugamál þótt listin hafi ekki verið virk sem skildi. Skemmtilegasta fagið.

í skóla var jafnan myndlistin og vil ég gjarnan rækta hana og gera meira úr áhugamáli mínu. Ég ætla að vera duglegri í tímans rás og veit að æfingin skapar meistarann.

Þeir myndlistarmenn sem hafa heillað mig eru æði margir en til að nefna einhvern þá er Karólína Lárusdóttir í miklu uppáhaldi. Tolli er algjör eðall og svo finnst mér Hekla góð. Dalí er skemmtileg kreisý típa og Picasso hefði verið gaman að hitta. Myndlist er að mínu mati heillandi og skemmtilegt viðfangsefni þar sem listamaðurinn fær tækifæri til að opna sál sína með túlkun á myndefni.
 
Fyrsta olíumálverkið var málað á unga aldri, þetta var framandi efni og spennandi og upphafið af góðu ferli. Málverkið hvílir nú á heimili foreldranna og finst mér jafnan gaman að sjá hvernig litir og form hafa breyst í tímans rás. Jafnt og þétt í gegn um tíðina hefur köllun til sköpunar verið, oft skort myndefni, hugmyndir og kjark til ad halda sér við efnið og þ.a.l. misvel tekist til enda þjálfun lykilatriði ef árangri skal náð.

Tjáning er frelsi sem við ættum öll að temja okkur í því formi sem geislar frá okkur.
Það að opna heimasíðu sem er jafnframt sölusíða er hugarfóstur sem fær að fæðast og vonandi dafna. Allir draumar eiga rétt á sér og það veit sá sem allt veit að þeir rætast. Ósk um drauma sem verða að veruleika. Draumur minn rætist lesandi góður með viðkomu þinni á heimasíðu www.zordis.com hvort sem þér líkar myndverkið eður ei.

Lífsins skóli hefur stutt við bakið á mér þó svo að menntun hafi ætíd kitlad á sviði myndlistar. Skref fyrir skref og slatti af þolinmæði er það sem þarf, svo ég tali nú ekki um áhugann sem er brennandi.

Takk fyrir að hafa litið við og góða skemmtun í annars dásamlegu lífi.

Zordis